18ágúst

nemo.bloggar.aldrei.is *eins og þór sagði*

Jæja,
menninganótt framundan :)
veit að ég er ekki búin að blogga leeeengi og það er líka ástæða fyrir því, það er bara leiðinlegt að blogga!
bara gaman að skoða það hjá öðrum :P

En já.. menninganótt.
Ég fer, ég fer ! ^^
átti að senda mig norður þessa helgi en nei, ekki svo auðveldlega!

Allavega frekar mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast,
endalaus ferðalög, verslunarmanna helgin (var á ak), elísa er búin að vera hérna, ég kláraði öll sumarlaunin mín á einni helgi (pottþétt bara útaf elísu O.o eða ég vil halda það)
Og já.. eitthvað..

tvisvar þetta sumar eru útlendingar búnir að hlaupa að mér og vilja fá að taka myndir af mér x_X
gaman að því ..

Já bless ^^
18. ágúst 2006 klukkan 17:52
Dagný Kolbeinsdóttir
6 athugasemdir
31júlí

=)

HÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ.

bless bless :D

þessi síða er að deyja =(

ég hata bannerinn -.-
31. júlí 2006 klukkan 18:29
Dagný Kolbeinsdóttir
1 athugasemd
28júní

vibbidu

Djöfull er nice að vera í bæjarvinnuni :)
Í dag var keyrt okkur upp í Selskóg og sátum bara þar á rassgatinu þangað til að hópstjórarnir gáfu okkur frítt pepsi eða appelsín og nammi :D
og við á launum held ég.
Mig langar samt í svona alvöru vinnu /:  þar sem ég er þá að gera eitthvað og fæ mikið borgað O.o
Að vinna í fisk sem dæmi, það væri fínt =) mikið að gera, mikið borgað.

Fæ örugglega svona 5000 kall fyrir allt sem ég er búin að gera síðustu daga í bæjarvinnuni..

EN ef allt gengur vel er ég örugglega búin að redda vinnu fyrir næsta ár :D

Nóg um vinnu.
Ég drakk held ég svona 2,8 lítra af kóki í gær. Met held ég. Samt ekki..

Er ekki búin að fara almennilega í WoW í 3 vikur, eða síðan á sunnudeginum áður en ég fór til Spánar.

Sakna WoW...

og já, af hverju fer ég ekki í WoW? mér tókst að rústa netinu í tölvunni minni! Kallinn í símanum lét mig gera það ..


bæ.

28. júní 2006 klukkan 16:14
Dagný Kolbeinsdóttir
8 athugasemdir
26júní

heimsendir

Mig dreymdi að ég hefði tekið mynd af sólinni og hún brotnaði og það kom heimsendir, það urðu allir ekkert smá fúlir út í mig.

26. júní 2006 klukkan 18:19
Dagný Kolbeinsdóttir
5 athugasemdir
08júní

Spánn, straff

Ég er á Spáni, búin ad vera í 3 daga held ég.
En allavega, mér tókst einhvernveginn ad koma mér í straff hérna.
Ég og Elísa týndumst hérna úti og rotudum ekki heim svo vid komum frekar....seeeint heim /:  Thetta var svaka mál og vid já.. endudum í straffi. Megum ekkert fara einar núna, haha.

En ég keypti mér Nightwish bol :D
Fór í Go-kart í dag, ég var sídust, reyndar thví ég klessti á og festist. Hjálmurinn var samt flottur :D
Svo koma Hildur og Bergvin núna á eftir, vú, sem thídir ad mér og Ingu verdur hent af heimilinu okkar til Elísu og Pálínu, en thad er fínt ^^

En, ég er á Spáni, bless :D

08. júní 2006 klukkan 23:20
Dagný Kolbeinsdóttir
2 athugasemdir
22maí

Rvk

Ég fór til Reykjavíkur í dag. Tók rútu uppá BSÍ og labbaði síðan þaðan til Stebba (hjálparlaust). Þetta tók mig 26 mínútur, þótt það taki vanalega svona innan við 10 mínútur ef maður kann leiðina. Ég fór samt að kannast við mig hjá Óðinsgötu því pabbi átti einu sinni heima þar :D. En um leið og ég kom þangað þá fattaði ég að ég hefði lagt símann frá mér á BSÍ og gleymt honum þar. Svo ég dríf mig heim til stebba sem var tveimur götum neðar en þar sem ég var. Þegar ég kom til hans fékk ég að kíkja á bsi.is og fann símanúmerið þar og hringdi og tilkynnti það að ég hefði gleymt símanum og bað þau að láta mig vita ef hann finndist =). Fljótlega eftir það komu Þór og Aron og við fórum öll út og fengum okkur að éta ^^
Held ég hafi reyndar ekki skilið neitt af því sem þeir voru að tala um á leiðinni. Eftir við vorum búin að éta fórum við aftur til Stebba. Klukkan var þá 4 held ég.
Þangað til klukkan 6 voru strákarnir mest í WoW og ég lá í rúminu að krota á stundartöfluna hans Stefáns, veit ekkert hvort ég mátti það ^^ Svo prufaði ég líka einhvern leik í nintendo og rústaði meðal annars Þór í honum =) Svo klukkan 17:48 lét ég Stebba labba með mér á BSÍ vegna þess að ég hreinlega rataði ekki.. Þór og Aron biðu heima hjá Stebba í WoW :)  nerds. Svo þegar ég kom á BSÍ keypti ég miða til Grindavíkur og sótti símann minn sem hafði fundist.
Það var allt troðfullt í rútunni og eina lausa sætið var við hliðiná íslenskum róna. Ég neyddist til að sitja þar. Djöfull var hann leiðinlegur. Hann var með "roooosa stóran tittling" (orðrétt eins og hann sagði þetta). Svo var hann alltaf með einhverjar þvílíkar snertingar og rugl. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera o.O .
Alltaf að endurtaka sömu hlutina. Ég var samt mjög kurteis, fannst mér, en auðvitað var ég komin með nóg :/  Svo kom ég heim og það var pizza í matinn =)

Ég er að komast bráðum í lvl 29 í WoW :D yay (ég tek minn tíma)
22. maí 2006 klukkan 01:29
Dagný Kolbeinsdóttir
14 athugasemdir
20maí

Sund =)

Mér finnst mjög mikilvægt að segja frá því að ég fór í sund í dag.
Tími númer tvö sem ég mæti í á þessu ári.
Byrjaði að skrópa þegar Freyr kom úr fæðingarorlofinu, lol.
En þetta var þannig að Freyr fékk greinilega nóg af öllum þessum skrópum hjá mér og hringdi í mömmu mína og sagði henni að ég þyrfti að mæta í aukatíma í sundi til að ná að ljúka 8. stigi í sundi, sem er rugl.
Ég kann nú þegar bringusund, skriðsund og baksund, hver er tilgangurinn með flugsundi? Ef ég væri að bjarga drukknandi manneskju myndi ég ekkert synda flugsund :/
Svo dytti mér ekki í hug að fara að synda af fúsum og frjálsum vilja heldur.
Who needs flugsund? =)

Ég fékk 8 í stærðfræði :D

Bless :D

20. maí 2006 klukkan 04:10
Dagný Kolbeinsdóttir
11 athugasemdir
15maí

góð helgi ^^

Fór á Selfoss um helgina. Hitta Eyrúnu og félaga :D
Það var ekkert smá gaman ^^
Fórum á Sign tónleikana á laugardeginum, það var gaman :D
mikið gaman


Ég var í íslensku prófi í morgun, held mér hafi gengið allt í lagi, eða vona það.
Hvernig átti ég svosem að vita að "m.gr." þýðir "með greini" ?
Ógeðslega erfiður þarna ólesni textinn.. um tré og brunna!
En ef ég fæ yfir 5-6 þá er ég ánægð, annars ekki.

Stærðfræði á morgun, danska hinn og enska hinn hinn.
Síðan skóli -_-

well bæ

15. maí 2006 klukkan 17:29
Dagný Kolbeinsdóttir
3 athugasemdir
11maí

Banner.. aftur -_-

Hef fengið að heyra eitthverntímann að ég breyti oft um bannera ^^ lol
Held það sé nokkurn vegin satt, en nú hef ég ástæðu. Það eru að koma próf og ég nenni ekki að læra!

Tvö próf hjá mér á morgun, eða dönskukönnun (nógu erfitt samt) og trúarbragðafræði próf. Síðan byrjar alvaran á mánudaginn. Íslenskan. Ég kann varla neitt af þessu viðtengingarboðháttafornafnalýsingarsagnorða rugli. Sem þýðir ég neyðist til að slökkva á tölvunni í smá tíma -_- 
Það verður erfitt. (Læt það bara nægja að slökkva á skjánum :D)

En, próf próf, gáfulegra að læra fyrir þau en sitja og blogga um að þurfa að læra fyrir þau ^^

11. maí 2006 klukkan 21:21
Dagný Kolbeinsdóttir
6 athugasemdir
10maí

=)

Ég nenni ekki að setja neitt á þessa síðu :/
nema þegar ég nenni því ..

En shit prófin að byrja.. á morgun!
Fer í líffræði á morgun, trúarbragðafræði á föstudag og íslensku held ég á mánudag svo bara man ég ekki meir. Ég veit samt að ég er í djúpum.
Sver það ég er örugglega með undir 5 í mætingareinkunn =( hef einu sinni mætt í sund á þessu ári! Held ég. Svo er ég líka byrjuð að koma svolítið oft of seint :/

En ég gleymi þessu öllu þegar ég fer til Spánar 5. júní :D  ví
Ef ég hef reiknað rétt þá eru 26 dagar þangað til :)


En ég er farin því ég þarf að læra fyrir próf sem ég kann ekkert í ^^

10. maí 2006 klukkan 17:58
Dagný Kolbeinsdóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing